Forsíða  |  Fréttir  |  Saltfisksetrið  |  Myndlist  |  Myndir  |  Hópar  |  Forsíða  |  Myndband
Nafn:   Netfang: |   English
Panorama
Viðburðardagatal
Sjóarinn síkáti
Föstudagur, 26 febrúar 2010
,,Fiskur undir steini" dagskrá

„Fiskur undir steini“ - kynning á menningu  og ferðaþjónustu 2010

Laugardaginn 27. febrúar verður kynning á menningu  og ferðaþjónustu  2010
í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a, Grindavík,  frá kl. 13.00 – 16.00.

Kl. 13:00
Viðburða- og menningardagskrá Saltfisksetursins og Grindavíkurbæjar  2010,
Kristinn Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi kynnir viðburðamikla dagskrá ársins. Viðburða- og menningardagskrá verður  á heimasíðu Grindavíkur grindavik.is

Kl. 13:10
AF STAÐ á Reykjanesið, 
menningar- og sögutengdar gönguhátíðir. Sigrún Jónsd. Franklín menningarmiðlari kynnir.

Kl. 13:20
Náttúruvika á Reykjanesi,
ýmsir dagskrárliðir sem kynna náttúru, sögu og menningu á Reykjanesskaga. Sigrún Jónsd. Franklín menningarmiðlari kynnir.

Kl. 13:35
Grindavík Experience,
ýmiss fyrirtæki í ferðaþjónustu kynna starfsemi sína s.s. Fjórhjólaferðir, Stakkavík (Upplifðu fisk).

Kl. 13:45
Markaðsstofa Suðurnesja
, Kristján Pálsson framkvæmdastjóri kynnir starfsemi Markaðsstofu m.a. nýja vefsíðu visitreyknanes.is. og verkefni Ferðamálasamtaka Suðurnesja.

Kl. 14:00 – Tónlistaratriði / matarsmakk (Aðal-Braut) / kaffi

Kl. 14:20
FERLIR,
Ómar Smári Ármannsson göngugarpur o.fl. kynnir söguskilti sem hafa verið sett upp á sjö stöðum  í Grindavík og jafnframt mestlesnu heimildasíðu um Reykjanesskagann, ferlir.is.

Kl. 14:40
Eldfjallagarður,
kynntar hugmyndir að samnefnara fyrir sérstöðu Reykjanesskagans sem geti tengt saman hinar fjölbreyttu auðlindir svæðisins og markað stefnu um nýtingu og verndun hans.

Kl. 15:00 „Fiskur undir steini“ sýning á  samnefndri sjónvarpsmynd (30 min.) sem  olli miklu umtali um  menningu í sjávarþorpum á sínum tíma.

Kl. 15:30
Matur á heimaslóð, kynning á mat og veitingastöðum. (Veitingastofan Vör, Salthúsið, Saltfisksetrið).
 
Tónlistaratriði

Kynningunni er ætlað að gefa innsýn í menningu og ferðaþjónustu og jafnframt efla samstarf.


« Til baka