Forsíða  |  Fréttir  |  Saltfisksetrið  |  Myndlist  |  Myndir  |  Hópar  |  Forsíða  |  Myndband
Nafn:   Netfang: |   English
Panorama
Viðburðardagatal
Sjóarinn síkáti
Miðvikudagur, 24 febrúar 2010
,,Fiskur undir steini"
Kynning á menningu og ferðaþjónustu í Grindavík

Kynning á menningu og ferðaþjónustu 2010 verður haldin laugardaginn 27. febrúar í Saltfisksetrinu, Hafnargötu 12a, Grindavík, frá kl. 13.00 - 16.00. Kynningunni er ætlað að gefa innsýn í menningu og ferðaþjónustu og jafnframt efla samstarf.

• Viðburða- og menningardagskrá Saltfisksetursins og Grindavíkurbæjar.
Kristinn Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi kynnir viðburðamikla dagskrá ársins 2010.

• AF STAÐ á Reykjanesið, menningar- og sögutengdar gönguhátíðir. Sigrún Jónsd. Franklín menningarmiðlari kynnir.

• Náttúruvika á Reykjanesi, ýmsir dagskrárliðir tengdir náttúru, sögu og menningu á Reykjanesskaga. Sigrún Jónsd. Franklín menningarmiðlari kynnir.

• Grindavík Experience, ýmiss fyrirtæki í ferðaþjónustu s.s.
Fjórhjólaferðir, Eldfjallaferðir, Bláa Lónið o.fl. kynna starfsemi sína.

• Markaðsstofa Suðurnesja. Kristján Pálsson framkvæmdastjóri kynnir starfsemi Markaðsstofu m.a. nýja vefsíðu visitreyknanes.is. og verkefni Ferðamálasamtaka Suðurnesja.

• FERLIR. Ómar Smári Ármannsson göngugarpur m.m. kynnir minja- og söguskilti sem sett hafa verið upp á sjö stöðum í Grindavík og mestlesnu heimildavefsíðu um Reykjanesskagann, ferlir.is.

• Eldfjallagarður. Óskar Sævarsson, forstöðumaður Saltfisksetursins kynnir hugmyndir að Eldfjallagarði; samnefnara fyrir sérstöðu Reykjanesskagans, sem geti tengt saman hinar fjölbreyttu auðlindir svæðisins og markað stefnu um nýtingu og verndun hans.

• Matur á heimaslóð, kynning á mat og veitingastöðum.

• Tónlistaratriði nemenda Tónlistarskólans.

• „Fiskur undir steini" sýning á samnefndri sjónvarpsmynd (30 mín.) er vakti mikið umtal á sínum tíma um menningu í sjávarþorpum.

Matarsmakk, ferðavinningar og allir velkomnir.

Kristinn Reimarsson f.h. Grindavikurbæjar, gsm 6607310 kreim@grindavik.is

Óskar Sævarsson f.h. Saltfisksetursins, gsm 6607303 oskar@saltfisksetur.is


Sigrún Jónsd. Franklín, verkefnastjóri kynningar, gsm 6918828 sjf@internet.is

www.grindavik.is www.saltfisksetur.is www.sjfmenningarmidlun.is


« Til baka