 Garðar Jökulsson opnar málverkasýningu í Listasal Saltfisksetursins laugardaginn 4. apríl kl. 14:00.
Garðar er fæddur í Reykjavík og hefur alla tíð búið á höfuðborgarsvæðinu. Áhugi hans á myndlist, sér í lagi landslagsmálverkinu byrjaði snemma og sækir hann efnivið í þessa sýningu í landslag og náttúru Íslands.
Frá árinu 1995 má segja að Garðar hafi helgað sig málverkinu. Hanna hélt sína fyrstu sýningu í Blónavali 1984 og síðan hefur hann haldið fjölmargar sýningar; í Ásmundarsal. Listhúsinu við Engjateig, Kringlunni, Domus Medica, Landsbankanum við Laugaveg 77. Honum var ásamt nokkrum öðrum listamönnum, boðið að sýna á ARTEXPO í New York í mars 2007. ARTEXPO er einn af stærri listviðburðum vestanhafs og haldin árlega.
Sýning Garðars stendur til 4. maí. Saltfisksetrið er opið alla daga frá 11:00 - 18:00. |