Forsíða  |  Fréttir  |  Saltfisksetrið  |  Myndlist  |  Myndir  |  Hópar  |  Forsíða  |  Myndband
Nafn:   Netfang: |   English
Panorama
Viðburðardagatal
Söfn og Sjávarfang
Föstudagur, 26 febrúar 2010
,,Fiskur undir steini" dagskrá
„Fiskur undir steini“ - kynning á menningu  og ferðaþjónustu 2010 Laugardaginn 27. febrúar verður kynning á......

» Lesa meira



Miðvikudagur, 24 febrúar 2010
,,Fiskur undir steini"
Kynning á menningu og ferðaþjónustu í Grindavík Kynning á menningu og ferðaþjónustu 2010 verður......

» Lesa meira



Miðvikudagur, 24 febrúar 2010
Fisktækniskólinn í Grindavík kynnir
Nýr fisktækniskóli, sem verið að koma á laggirnar í Grindavík, kynnir á morgun þær námsleiðir sem í boði eru......

» Lesa meira

Salfisksetur Íslands í Grindavík

Þegar leið á 18. öldina, og þilskip tóku að leysa áraskipin af hólmi, varð saltfiskur aðalútflutningsvara Íslendinga. Fram að því höfðu vaðmál og skreið verið undirstaða utanríkisverslunar. Með tilkomu togaranna varð saltfiskverkun í raun að stóriðju og saltfiskur hefur æ síðan skipt verulegu máli fyrir afkomu þjóðarbúsins. Grindvíkingar hafa löngu verið drjúgir við að saltfiskinn og sýningum sögu verkunar og sölu á salfiski og þýðingu hans fyrir þjóðarbúið í gegn um tíðina á því vel heima í þessu ágæta sjávarplássi við suðurströndina.

Sýningin ætti að geta orðið forvitnileg fyrir erlenda ferðamenn, fróðleg fyrir skólafólk, sem getur hér kynnt sér mikilvægasta atvinnuveginn, og ánægjuleg fyrir hinn almenna Íslending sem fer í helgarbíltúr með fjölskylduna. Hún ætti einnig að geta orðið liður í að draga upp og efla sjálfsmynd bæjarins og fólksins sem þar býr.

Aðstæður hafa hagað því þannig að ekkert byggðasafn er staðsett í Grindavík. Saltfisksetrið kemur því stað safns og mun án efa verða miðpunktur margvíslegrar menningarstarfsemi heimamanna og að auki aðdráttarafl og upplýsingarmiðstöð fyrir ferðamenn sem sækja staðinn heim.

Lesa meira..